Ótrúlega fjölbreyttur starfsferill
15. janúar, 2024

Arnar Sigurmundsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri, hlaut Fréttapýramídann 2024 fyrir framlag sitt til félagsmála, menningarmála og atvinnulífs í Vestmannaeyjum og á landsvísu um áratuga skeið.

Arnar fæddist í Vestmannaeyjum 19. nóvember 1943. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja 1960 og fór að því loknu að vinna í fiski, hjá Kaupfélagi Vestmannaeyja og síðan við heildverslun Heiðmundar bróður síns, H. Sigurmundsson hf., frá 1965 fram að gosi. Þar vann Arnar við sölumennsku, innheimtu og umboð Samvinnutrygginga.

Arnar varð starfsmaður Viðlagasjóðs í byrjun mars 1973 þegar hann var á 30. aldursári. Hann var framkvæmdastjóri sjóðsins  í Vestmannaeyjum frá september 1973 og fram í mars  1977. Viðfangsefnin voru ærin. Fyrst var áhersla á að verja byggðina og höfnina, svo tók við hreinsun Vestmannaeyjabæjar og mat á tjóni sem eldgosið olli.

Hann var framkvæmdastjóri Samfrosts sf., þjónustufyrirtækis frystihúsanna í Eyjum, frá 1977 til 1992 og formaður Samtaka fiskvinnslustöðva (SF) 1987 til 2014. Arnar tók þátt í sameiningu SF og LÍÚ í Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) árið 2014.

Arnar settist í stjórn Lífeyrissjóðs Vestmannaeyinga 1980, síðar Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja,  og sat þar nær samfleytt til 2017. Hann átti sæti í stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða frá stofnun 1998 og til 2017, var formaður 2006-2012. Arnar var talsmaður lífeyrissjóðanna þegar bankakerfið féll haustið 2008 og í eftirleik þess. Hann sat oft fyrir svörum í fjölmiðlum og svaraði ávallt af yfirvegun og festu, sagði aldrei meira en efni stóðu til.

Sat 270 bæjarstjórnarfundi

Arnar var formaður Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins 1997-2004, stjórnarmaður í Vinnuveitendasambandi Íslands og síðar í stjórn Samtaka atvinnulífsins (SA) til 2015 og ráðgjafi SA í lífeyrismálum. Sem slíkur kom hann að gerð fjölda kjarasamninga.

Hann var stjórnarformaður Visku frá stofnun 2003 til 2023, í stjórn Þekkingarseturs Vestmannaeyja frá stofnun  2008,  þar af formaður 2018-2023, í stjórn  Sparisjóðs Vestmannaeyja  um árabil og formaður stjórnar 1992-2000.  Arnar hefur staðið fyrir námskeiðum um átthagana, meðal annars um húsin sem hurfu undir hraun. Einnig hefur hann haldið erindi um þau, svo fátt eitt sé nefnt.  Arnar var í stjórn Eyverja 1964-1977 og bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1978-1986 , 1995-1998, 2002-2006 og varamaður í bæjarstjórn í fjögur kjörtímabil.  Hann sat 270 bæjarstjórnarfundi á árunum 1974-2009. Aðeins fjórir bæjarfulltrúar hafa setið  fleiri bæjarstjórnarfundi en Arnar frá því að Vestmannaeyjabær fékk kaupstaðarréttindi 1919.

Arnar var formaður Taflfélags Vestmannaeyja  1962-1964 og aftur 50 árum síðar, 2015-2021.  Hann hefur lengst af verið  virkur í starfsemi félagsins og fjórum sinnum orðið Skákmeistari Vestmannaeyja.
Arnar hefur verið í ritnefnd Fylkis frá 1992 og ritstjóri  jólablaðs Fylkis.  Hann er einn af stofnendum Eyjaprents sem sameinaðist Fjölsýn í Eyjasýn ehf., útgefanda Frétta/Eyjafrétta, og í stjórn félagsins um langt árabil.  Guðni Einarsson. Mynd Addi í London.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst