Aðeins hefur verið fjallað um umgengni nokkurra óvandaðra einstaklinga í Vestmannaeyjum undanfarið en nú sem aldrei fyrr. Starfsmenn Áhaldahúss keyrðu fram á bílhræ sem búið var að skilja eftir á miðjum veginum að Urðarvita, austur á Nýja hrauni. „Er nema von að það vakni hjá manni spurningar, hvort sumt fólk sé ekki í lagi?“ spyr Guðmundur Þ.B. Ólafsson, forstöðumaður Áhaldahúss Vestmannaeyja sem sendi ritstjórn Eyjafrétta meðfylgjandi myndir.