�?vanalega mikið um umferðaróhöpp
�?að var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið en óvanalega mikið var um umferðaróhöpp í vikunni og er rétt í tilefni af því að hvetja ökumenn til að aka varlega og haga akstri sínum eftir aðstæðum. Skemmtana hald helgarinnar fór fram með áægtum en þó var ein kæra vegna líkamsárásar lögð fram.
Ein líkamsárás var kærð eftir skemmtanahald helgarinnar en þarna hafði maður sem var eitthvað ósáttur slegið annan í andlitið með þeim afleiðingum að sá sem fyrir árásinni varð nefbrotnaði. Málið er í rannsókn.
Að morgni 2. nóvember sl. var lögreglu tilkynnt um að brotin hafi verið rúða í 900 Grillhúsi og er talið að rúðan hafi verið brotin þá um nóttina. Ekki er vitað hver þarna var að verki en þeir sem einhverjar upplýsingar hafa um það hver þarna var á ferð eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu.
Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í vikunni sem leið og áttu þau bæði sér stað um liðna helgi. �?að fyrra var á gatnamótum Illugagötu og Kirkjuvegar en það seinna á gatnamótum Heiðarvegar og Faxastígs. Engin slys urðu á fólki í þessum óhöppum en bifreiðarnar eru töluvert skemmdar og óökufærar.
Tvö umferðarlagabrot komu til kasta lögreglu í liðinni viku en í báðum tilvikum var um að ræða árekstur þar sem sá er tjóninu olli fór af vettvangi án þess að láta tjónþola vita af tjóninu. Annað atvikið átti sér stað við Faxastíg 38, en talið er að óhappið hafi átt sér stað á tímabilinu 25. – 27. október sl. �?arna hafði verið ekið utan í kyrrstæða bifreið og sá sem olli óhappinu hafði ekki fyrir því að tilkynna það. Bifreiðin sem ekið var á er af gerðinni Dodge Magnum, grá að lit.
Hitt tilvikið átti sér stað á Skólavegi, við safnaðarheimilið, laugardaginn 26. október s.l. milli kl. 14:00 og 16:00. �?arna var ekið aftan á kyrrstæða bifreið og sá er það gerði ók í burtu án þess að tilkynna um óhappið. Bifreiðin sem ekið var á er af gerðinni Renault Megan, ljósgræn að lit.
Lögreglan hvetur ökumenn til að leggja ökutækjum sínum löglega en lögreglan hefur fengið kvartanir frá almenningi þess eðlis að ökutækjum sé ólöglega lagt. Mun lögreglan fara í það næstu daga að sekta vegna ólöglegra lagninga ökutækju.

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.