Í hádeginu var greint frá því að dæluskipið Perlan hefði lítið sem ekkert getað dælt upp sandi í Landeyjahöfn. Heimildir Eyjafrétta reyndust ekki réttar því Perlan hefur frá því klukkan 11 í gærmorgun, dælt upp rúmlega 5000 rúmetrum af efni í og við höfnina. Perlan á ekki að geta athafnað sig í meira en eins metra ölduhæð en öldudufl við Landeyjahöfn sýnir að ölduhæð hafi verið meira en einn metri í nótt.