�?Strákurinn, sem er um átta ára gamall, var á leið áleiðis frá Reykjavík austur á Selfoss með jafnaldra bróður sínum. Uppi á Hellisheiði biður hann bílstjórann um að stoppa því honum sé mál að pissa. Bílstjórinn harðneitar og segir að hann verði að halda í sér. �?egar komið er í Hveragerði biður strákurinn aftur að það sé stoppað. Bílstjórinn segir þá að ætli hann út verði hann skilinn eftir. Drengurinn situr áfram í rútunni en eftir að hafa fengið neitun í þriðja sinn vippar elsku kallinn sér úr sætinu og sprænir niður ganginn í rútunni, heljarmiklu sýndist mér,�? segir Grétar og kallar þetta svívirðilega vanvirðingu við börn að hálfu bílstjórans.
�?Strákurinn var alveg miður sín yfir að þurfa grípa til þessa örþrifaráðs. �?að er ekki endilega við bílstjórann að sakast persónulega heldur fyrirtækið sem hann vinnur fyrir. Rútubílstjórarnir eru undir svo gífurlegu álagi í vinnunni að þeir mega ekki við því að gera nokkurra mínútna stopp, öðruvísi en að raska settum tímasetningum,�? segir Grétir sem lagði inn kvörtun hjá �?ingvallaleiðum fyrir hönd drengsins. Auk Grétars urðu um tíu farþegar í rútunni vitni að uppákomunni.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst