Á árunum 1855 til 1914 fluttur um 400 Íslendingar til Utah, flestir þeirra urðu mormónar en þó ekki allir. Helmingur þeirra var úr Vestmannaeyjum sem var mikil blóðtaka á 60 árum, fyrir ekki stærra bæjarfélag. Á morgun, laugardag 30. ágúst verður ráðstefna í Alþýðuhúsinu, þar sem afkomendur Utahfaranna í Bandaríkjunum munu segja frá hvernig fólkinu frá Vestmannaeyjum reiddi af í nýja landinu.
Tilgangur ráðstefnunnar eru að koma á tengslum milli Utah og Vestmannaeyja, en Kári Bjarnason, forststöðumaður Bókasafnsins hefur í mörg ár rannsakað þess fólksflutninga til Vesturheims. Hann hefur undirbúið ráðstefnuna og hefur fengið til liðs við sig þá Tómas Jóhannesson og Harald �?orstein Gunnarsson. Að lokinni ráðstefnunni verður gengið í Einarsstofu þar sem opnuð verður sýning um mormóna í Utah.