Áhöfnin á Huginn VE 55 er greinilega með á hreinu boðskap jólahátíðarinnar en fulltrúar þeirra komu færandi hendi í Landakirkju. Færði áhöfnin prestum kirkjunnar 600 þúsund krónur í Styrktarsjóð Vestmannaeyjaprestakalls en peningunum verður varið í jólastyrk og neyðaraðstoð fjölskyldna í Eyjum. �??Og það er ekki í fyrsta sinn sem þið sýnið örlæti í garð náungans með þessum hætti, kæru vinir, alveg eftir Biblíunni. Um leið og ég þakka liðin ár bið ég þess að Guð gefi ykkur og fjölskyldum ykkar gleðileg jól og nýtt ár, skipi og mönnum til blessunar!�?? skrifaði Kristján Björnsson sóknarprestur Landakirkju á facebook síðu sína.