Konan sem bjargaði Gaujulundi
Renate er uppalin við garðrækt og þar sem hún hefur ekki garð sá hún tækifæri í Gaujulundi fyrir grænar fingur. Mynd Óskar Pétur.

Gaujulundur er vin í Nýjahrauninu sem var gróðursnautt og svart á árunum eftir gos. Það var sumarið 1988 sem hjónin Erlendur Stefánsson og Guðfinna Ólafsdóttir, Elli og Gauja hófu af mikilli eljusemi uppgræðslu og ræktun í dalverpi á Nýja hrauninu, aðeins 15 árum eftir jarðeldana 1973.

Í upphafi var þar enginn jarðvegur, tómur vikur en með árunum dafnaði lundurinn og fékk nafnið Gaujulundur eftir Gauju. Er það vel við hæfi. Síðustu ár hefur Gaulundi lítið verið sinnt en í vor sá ung kona, Renate Heisek frá Lettlandi tækifæri til að fá útrás fyrir ástríðu sína í garðyrkju. Hafði samband við bæinn og hjólin fóru að snúast.

 

Gaujulundur er mikill sælureitur, ekki síst fyrir börn. Það sýndi sig þegar Kormákur Leó kíkti þar við með foreldrunum, Kristínu Sólveigu og Knúti um helgina. Margt að skoða fyrir ungan mann.

Sjá nánar í blaði Eyjafrétta sem koma út í dag.

Nýjustu fréttir

Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Morgan Goði – Íþróttamaður mánaðarins
Þrír ættliðir stóðu vaktina í Tvistinum
Dagskrá 17. júní
Tekjur Vestmannaeyjabæjar langt yfir áætlun
Binni í Vinnslustöðinni – Kynni mín af Ísleifsfólki
Sonur fékk eignarhlut sinn leiðréttan í Landsrétti
Alexandra Ósk – Íþróttamaður mánaðarins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.