Ríkisstjórn myndar gjá milli landsbyggðar og höfuðborgar
Þeir fluttu erindi á ráðstefnunni, Sigurgeir Brynjar, Stefán, Guðmundur, Páll, Einar og Róbert. Ómar Garðarsson, ritstjóri Eyjafrétta í ræðustól en hann setti ráðstefnuna. Fundarstjóri var Tryggvi Már Sæmundsson sem einnig er ritstjóri Eyjafrétta. Myndir Óskar Pétur.

Það var mikill fengur að fá Guðmund Fertram Sigurjónsson, stofnanda og forstjóra líftæknifyrirtækisins Kerecis á Ísafirði á ráðstefnu Eyjafrétta í Akóges um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar í gær.  Kerecis byggði Guðmundur upp ásamt góðu fólki og var  Kerecis í fyrra selt til danska stórfyrirtækisins Coloplast á rúmlega 175 milljarða króna.

Rástefnuna sóttu um 80 manns og kom margt athyglisvert fram á henni. Ekki síst hvaða afleiðingar hækkun veiðigjalda mun hafa. Ljóst er að hún verður þungt högg fyrir Vestmannaeyjar sem gætu séð á eftir a.m.k. 1,5 milljörðum á ári í ríkishítina án þess að fá nokkuð á móti.

Auk Guðmundar fluttu Einar Sigurðsson, stjórnarformaður Ísfélags hf., Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja, Róbert Ragnarsson sérfræðingur hjá KPMG og Stefán Örn Jónsson framkvæmdastjóri Skipalyftunnar erindi.

 

Ráðstefnan var vel sótt og komu margar áhugaverðar spurningar í lokin. Mynd Óskar Pétur.

 

Vestfirðir hafa eins og Vestmannaeyjar verið í mikilli uppsveiflu undanfarin ár og hefur skattspor fjórðungsins margfaldast um leið. Guðmundur óttast að nú sé svartnætti framundan með aukinni skattlagningu á landsyggðina. Gengur svo langt að segja ríkisstjórnina mynda gjá milli landsbyggðar og höfuðborgar.

Margt annað áhugavert kom fram sem greint verður frá á næstu dögum. Ljóst er að framundan er varnarbarátta þar sem framtíð landsbyggðarinnar er í húfi.

Kerecis framleiðir lækningavörur úr þorskroði sem notaðar eru við meðhöndlun þrálátra sára til að mynda vegna sykursýki, skurðaðgerða og alvarlegs bruna. Rúmlega 500 vinna hjá fyrirtækinu víða um heim þar af um 70 á Ísafirði.

Nýjustu fréttir

Íris ætlar að ganga í Sjálfstæðisflokkinn
Arnór með fimm mörk í jafntefli Karlskrona
Rannveig Ís­fjörð sækist eftir 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Systurskipin landa fullfermi
Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur til alþjóðlegra verðlauna
Aníta sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Enginn úr núverandi meirihluta gefur kost á sér áfram
Síðasti séns! Taktu þátt í að móta menningarstefnu Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.