Ekkert verður úr áheyrnarprufum söngkeppninnar Raddarinnar í Vestmannaeyjum en í fréttatilkynningu frá forsvarsmönnum keppninnar kemur fram að lítil þátttaka í Eyjum hafi orðið til þess að prufunum hafi verið aflýst. „Okkur þykir miður að geta ekki komið, en því miður hafa alltof fáir skráð sig,“ segir í fréttatilkynningu frá þeim Siggu Beinteins og Maríu Björk sem má lesa hér að neðan.