Þú skrifaðir fyrir helgina langan og sundurlausan reiðilestur vegna umfjöllunar Kastljóss um verðmyndun sjávarafurða. Satt best að segja er ekki hlaupið að því að átta sig á því hverjum klukkan glymur í pistli þínum. Þar eru enda alls ótengd hugðarefni þín undir; allt frá deilum um nýtt kvótafrumvarp til þjóðarmorða á gyðingum. Þessu grautarðu svo saman, bætir í og býrð til, eins og lund þín leyfir. Og mikið djöfull leyfir hún.