Sandra og Gísli Þorgeir og handknattleiksfólk ársins

Stjórn HSÍ hefur kosið handknattleikskonu og handknattleiksmann ársins, þau Söndru Erlingsdóttur og  Gísla Þorgeir Kristjánsson. Um Söndru segir: – Handknattleikskona ársins 2023 er Sandra Erlingsdóttir, 25 ára leikstjórnandi TuS Metzingen í Þýskalandi og A landsliðs kvenna.

Sandra lék í stórt hlutverk með Tus Metzingen í þýsku úrvalsdeildinni auk þess sem liðið komst í Final 4 í bikarkeppninni. Sandra m.a. valin besti leikmaður 1. umferðar þýsku úrvalsdeildarinnar. Sandra er ein burðarása kvennalandsliðsins sem tók nýverið þátt í HM 2023 og vann Forsetabikarinn. Sandra skoraði 34 mörk HM og var markahæsti leikmaður Íslands á HM og einnig markahæsti leikmaður Íslands á HM frá upphafi.

Sandra er frá Vestmannaeyjum og lék bæði með ÍBV og HK í yngri flokkum auk þess sem að vera um tíma með Füchse Berlin í Þýskalandi þegar fjölskylda hennar bjó ytra. Þegar hún flutti aftur heim fór Sandra, 18 ára, að leika með meistaraflokki ÍBV og lék þar í 2 ár þar til hún skipti til Vals sumarið 2018. Hún varð Íslandsmeistari með Val vorið 2019 og fór árið eftir í atvinnumennsku í Danmörku þaðan sem hún fór sumarið 2022 til Þýskalands.

Sandra hefur leikið 32 leiki með kvennalandsliðinu og skorað í þeim 145 mörk.

Handknattleiksmaður ársins

Um Gísla Þorgeir segir: – Handknattleiksmaður ársins er Gísli Þorgeir Kristjánsson, 24 ára leikstjórnandi Madgeburg í Þýskalandi og A landsliðs karla. Gísli Þorgeir vann í vor ásamt liðsfélögum sínum í Magdeburg Meistaradeild EHF ásamt því fá silfurverðlaun í þýsku bikarkeppninni. Gísli Þorgeir var valinn mikilvægasti leikmaður Final 4 úrslitahelgi Meistaradeildarinnar ásamt því að vera valinn besti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar og besti leikmaður Magdeburg á síðustu leiktíð.

Gísli Þorgeir er Hafnfirðingur og lék alla yngri flokka með FH. Hann spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik með FH árið 2015. Árið 2018 gerði Gísli Þorgeir samning við THW Kiel og lék með liðinu þangað til í upphafi árs 2020 þegar hann færði sig til Magdeburg þar sem hann leikur í dag.

Með landsliðinu lék Gísli Þorgeir á HM í Svíþjóð og Póllandi í janúar en á árinu tók hann þátt í 12 landsleikjum og skorað í þeim 37 mörk. Gísli á að baki 51 landsleik sem hann hefur skorað í 113 mörk.

 

Nýjustu fréttir

Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.