Í gærkvöldi fór fram lokahóf ÍBV íþróttafélags en hófið fór fram í Golfskálanum að þessu sinni. Hápunktur lokahófsins var þegar tilkynnt var um verðlaun leikmanna en að þessu sinni voru það þau Matt Garner og Shaneka Gordon sem voru valin best hjá ÍBV í sumar og eru þau bæði vel að titlinum komin. Sabrína Lind Antonsdóttir og Jón Ingason hlutu Fréttabikarana, sem Eyjafréttir afhenda þeim leikmönnum sem miðillinn telur efnilegastir