Handknattleikslið ÍBV varð fyrir gríðarlegu áfalli í dag í upphafi leiks ÍBV og Gróttu. Sigurður Bragason, fyrirliði og einn besti leikmaður liðsins undanfarin ár, sleit hásinina. Gera þurfti um tíu mínútna hlé á leiknum áður en fyrirliðinn var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahúsið í Eyjum. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá forráðamönnum ÍBV var Sigurður sendur beint á skurðarborðið. Þrátt fyrir þetta mikla áfall gekk Eyjamönnum vel gegn toppliðinu en töpuðu að lokum með einu marki, 19:20.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst