Framsóknarmenn á Suðurlandi skipuðu frambjóðendum á lista fyrir alþingiskosningar í vor á tvöföldu kjördæmisþingi á Selfossi í dag. Í fyrsta sæti verður Sigurður Ingi Jóhannsson, alþingismaður, Hrunamannahreppi sem fékk öll atkvæði í það sæti, var enda sá eini sem gaf kost á sér til þess.