ÍBV endaði Íslandsmótið í þriðja sæti í ár. Liðið var í öðru sæti fyrir síðustu umferðina en þurfti sigur gegn Íslandsmeisturum síðasta árs, Þór/KA fyrir norðan til að halda sætinu. Þór/KA hafði hins vegar betur, 3:1 en á sama tíma vann Valur Selfoss á heimavelli 4:0 og skaust um leið upp fyrir ÍBV. Þrátt fyrir það verður að segjast eins og er að árangur ÍBV sé framar vonum enda heltust margir lykilleikmenn úr lestinni vegna meiðsla í lengri eða skemmri tíma í sumar.