Veitingastaðurinn Skál í Hlemmi mathöll fékk hina virtu Bib Gourmand-viðurkenningu frá Michelin nú í gær. Bib Gourmand-viðurkenningin er veitt veitingastöðum sem bjóða upp á hágæðamat á sanngjörnu verði. Í umsögn Michelin segir að Skál sé skemmtilegur lítill staður í fyrstu mathöll Íslendinga þar sem er hægt að deila nútímalegum útgáfum af hefðbundnum íslenskum réttum.
Það eru tveir eyjamenn sem eru í eigendateymi Skálar, en það eru félagarnir Gílsi Matthías Auðunsson og Gísli Grímsson. En Gísli Matthías er einnig yfirkokkur og einn af eigendum Slippsins í Vestmanneyjum sem einnig hefur fengið margar viðurkenningar erlendis frá.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.