Stofnfjáreigendur í Sparisjóði Vestmannaeyja tapa 72 prósentum af stofnfé sínu
21. júní, 2010
Í kvöld verður stofnfjáreigendafundur hjá Sparisjóði Vestmannaeyja. Sparisjóðurinn eins og flest önnur fjármálafyrirtæki fór illa út úr hruninu. Rétt fyrir hrun var stofnfé í Sparisjóðnum aukið verulega og þeir sem áttu fyrir stofnfé höfðu forkaupsrétt að aukningunni. Eftir því sem heimildir eyjafretta segja, keyptu allir þáverandi stofnfjáreigendur hámarkshlut og var kaupverðið 5 milljónir króna.
Samkvæmt tillögu sem borin verður upp af stjórn Sparisjóðsins á fundinum í kvöld verður núverandi stofnfé fært niður um 72%. Það þýðir að hver 5 milljón króna hlutur verður færður niður í 1,4 milljón krónur.