Stöndum vörð um opinber störf í Eyjum
22. desember, 2023

„Auðvitað er maður sár og ég veit að mörgum Eyjamönnum finnst í besta falli skrýtið að á 60 ára afmælisári  Surtseyjargossins sé Umhverfisstofnun að pakka niður og flytja starfsemi sína frá Vestmannaeyjum á höfuðborgarsvæðið frá og með 1. janúar næstkomandi. Mörgum þykir þessar kveðjur eins og hnífur í bakið á Eyjamönnum sem geta framvegis einungis fylgst með viðgangi eyjarinnar í gegnum sjónauka suður á Heimaey eða í gegnum vefmyndavél á vef Umhverfisstofnunarinnar,“ segir Hörður Baldvinsson, framkvæmdastjóri Þekkingarseturs Vestmannaeyja um þessa ákvörðun stofnunarinnar.

Finnst Herði þetta kaldar kveðjur. „Eins og þeir sem eldri eru muna, voru það Eyjamenn sem stóðu vaktina á meðan á Surtseyjargosinu stóð. Hafa alla tíð verið boðnir og búnir að  aðstoða vísindamenn við að komast til og frá eynni eftir þörfum. Þegar Svandís Svavarsdóttir, þáverandi umhverfisráðherra ávarpaði gesti við opnun Surtseyjarstofu í Vestmannaeyjum 2.júlí 2010 sagði hún meðal annars: „Surtsey er annað svæðið á Íslandi sem er samþykkt á heimsminjaskrá UNESCO, en Þingvellir voru samþykktir árið 2004 sem einstakur staður menningarminja. Surtsey er í dag á heimsminjaskrá ásamt 176 öðrum náttúruminjasvæðum um allan heim. Surtseyjarstofa er komin til að vera í Vestmannaeyjum.“

Svikin loforð

Hörður sagði að síðustu fjögur til fimm ár hafi Surtseyjastofa undir hatti Umhverfisstofnunar verið með skrifstofu hér í Eyjum. Þó einungis til málamynda og hafi starfsmenn stofnunarinnar komið æ sjaldnar séð ástæðu til að heimsækja Vestmannaeyjar. „Þegar hagræðingarhnífurinn fer á loft í ríkisrekstrinum  er auðveldast að draga saman úti á landsbyggðinni og skera niður þar. Stóru loforðin um að Surtseyjarstofa og rannsóknir tengdar henni yrðu ávalt í Vestmannaeyjum eru löngu gleymd. Þeir sem  vilja fræðast um eyna þurfa að fara í höfuðborgina til þess.“

Hörður segir þetta skjóta skökku við á allan hátt. „Surtsey er við bæjardyr okkar. Eyjan og friðlandið umhverfis hana er skráð á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna sem einstakur staður náttúruminja á heimsmælikvarða sem við höfum ekkert lengur með að gera.“

Stöndum saman Eyjamenn?

„Samkvæmt stofnsamþykktum sem undirritaðar voru á sínum tíma segir: -Til ráðgjafar um málefni friðlandsins er ráðgjafanefnd Surtseyjar sem er skipuð sex fulltrúum. Fulltrúar nefndarinnar eru frá Umhverfisstofnun, Surtseyjarfélaginu, Náttúrufræðistofnun Íslands, Hafrannsóknastofnun og Vestmannaeyjabæ,“ segir Hörður og bendir á þetta sé ekki einsdæmi.

„Á vef Umhverfisstofnunar og á vef Surteyjafélagsins (surtsey.is) er hvergi minnst á aðkomu Vestmannaeyjabæjar að ákvarðanatöku um málefni Surtseyjar. Er ekki kominn tími til að við Eyjamenn stöndum vörð um hagsmuni Vestmannaeyja og látum það okkur varða þegar fyrirtæki og stofnanir sem hyggjast leggja niður starfsemi hér og flytja upp á fastalandið í hagræðingarskyni?“

Hörður bendir á að nýlega lagði verkfræðistofan Mannvit niður starfsemi  í Eyjum vegna verkefnisskorts og ekki megi gleyma Matís sem hætti starfsemi hér fyrr á árinu af sömu ástæðu. „Furðulegt að Matís hafi ekki næg verkefni í Vestmannaeyjum sem byggir á framleiðslu matvæla. Þá er sýslumaðurinn í lausu lofti. Er á Hvolsvelli í augnablikinu. Verður hann staðsettur þar í framtíðinni? Hvað með Hafró? Annar starfsmaðurinn hefur sagt upp. Verður annar ráðinn hingað til Eyja? Það er með ólíkindum að opinberar eða hálf opinberar stofnanir sjái sér ekki hag í því að vera með öfluga starfsemi í stærstu verstöð landsins. Við Eyjamenn þurfum stöðugt að vera á tánum til að tryggja að opinber störf flytjist ekki í burtu án þess að spyrna við fótum,“ sagði Hörður að endingu.

 

 

 

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst