Stórsigur hjá KFS
KFS og Álftanes mættust í 3. deild karla í dag á Hásteinsvelli. Heimamenn byrjuðu af krafti og fyrsta mark leiksins kom eftir aðeins sex mínútna leik en þar var að verki nýjasti leikmaður KFS, �?skar Zoega �?skarsson. Kjartan Guðjónsson kom svo KFS í 2-0 á fimmtándu mínútu og stuttu seinna skoraði Sölvi Víðisson og staðan orðin 3-0 og ekki tuttugu mínútur liðnar af leiknum. Gestirnir frá Álftanesi náðu að minnka munninn rétt áður en dómari leiksins flautaði til hálfleiks og staðan því 3-1 þegar liðin gengu til búningsklefa.
Síðari hálfleikur fór aðeins rólegra af stað heldur en sá fyrri en á 60 mínútu kom Gunnar Páll Pálsson KFS í 4-1 og nokkrum mínútum síðar skoraði Yngvi Borgþórsson fimmta mark þeirra en hann gekk til liðs við KFS í gær frá ÍBV. Guðbjörn Alexander Sæmundsson skoraði annað mark gestanna á 77. mínútu en gestirnir áttu aldrei séns í vel spilandi lið KFS. Sigurður Grétar Benónýsson skoraði svo síðasta mark KFS þegar venjulegum leiktíma var lokið.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.