Nú styttist óðum í bikarleikinn hjá stelpunum. ÍBV og Valur spila í undanúrlsitum Coka Cola bikarsins fimmtudaginn 7. mars kl. 18.00 í Laugardalshöll. Nú er mikilvægt að Eyjamenn fjölmenni í höllina og hjálpi stelpunum okkar að komast í úrslitaleikinn. Eyjafréttir heyrðu í Ester Óskarsdóttur og tókum aðeins stöðuna á henni.
Ertu ánægð með gengi liðsins og spilamennskuna í vetur? Já og nei. Byrjuðum tímabilið ágætlega en svo má segja að árið 2019 hafi alls ekki byrjað vel fyrir okkur. Við höfum gert nóg til að halda okkur í topp 4 í deild og bikar en við vitum það að við getum spilað mun betur.
Nú eru þið að fara mæta Val, hvernig lýst þér á að mæta þeim? Bara mjög vel. Við eigum eftir að svara fyrir síðustu tvo leiki á móti þeim þar sem þær fóru með sigur.
Hvernig mundir þú lýsa hinum týpíska leikdegi hjá þér? Ég er ekki með neina ákveðna rútínu. Ef ég hef tök á þá finnst mér fínt að taka létta lyftingaæfingu á leikdegi, kveikja á kerfinu.
Stuðningur áhorfenda skiptir miklu máli, einhver skilaboð til stuðningsmanna ÍBV? Það hefur sýnt sig að við eigum án efa bestu stuðningsmennina. Ég hvet Eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu og þá sem hafa tök á að fjölmenna á leikinn á fimmtudaginn. Fyrsta skrefið í því að ná dollunni heim eftir áralanga bið.
Hægt er a kaupa miða á leikinn hérna.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst