Í tilefni af því að nú eru 40 ár liðin frá því eldgosið í Heimaey hófst og lauk bjóða Listvinir Safnahúss til óvenjulegrar myndlistarsýningar í Einarsstofu. Í eigu bæjarins er málverk eftir Steinunni Einarsdóttur þar sem hún túlkar eldgosið eins og það birtist henni svo fjarri heimahögum, en hún bjó í Ástralíu á þeim tíma.