ÍBV sækir Hauka heim í öðrum leik undanúrslita

Baráttan um sæti í úrslitum Íslandsmótsins í handbolta heldur áfram í dag þegar ÍBV mætir Haukum í öðrum leik liðanna í undanúrslitum. Leikurinn fer fram á Ásvöllum og hefst klukkan 16:00. Haukar leiða einvígið 1–0 eftir sigur í fyrsta leik, en Eyjakonur stefna á að jafna metin og færa einvígið aftur í jafnvægi. Um er […]

ÍBV tapaði á Hlíðarenda

Karlalið ÍBV í fótbolta tapaði 2-1 gegn Val, í annarri umferð Bestu deildar karla, á Hlíðarenda í kvöld.  Fyrri hálfleikurinn byrjaði nokkuð rólega og lítið um alvöru færi. Það dró til tíðinda á 21. mínútu leiksins þegar Eyjamenn fengu hornspyrnu. Bjarni Mark Antonsson skallaði þá boltann í burtu beint fyrir fætur Felix Arnars Friðrikssonar sem átti […]

Bæjaryfirvöld kalla eftir tafarlausum aðgerðum vegna samgöngustöðu

Í tilkynningu frá bæjaryfirvöldum í Vestmannaeyjum er ástand samgangna við Eyjar sagt óboðlegt og varað við að stefni í neyðarástand. Fram kemur að Landeyjahöfn sé enn lokuð um miðjan apríl og lítið gangi við dýpkun. Nýjustu mælingar sýni slæma stöðu og óvíst sé hvenær hægt verði að opna höfnina. Dýpkunarskipið Álfsnesið hafi hætt störfum í […]

Baldur fyrr í áætlun vegna biðlista

Ákveðið hefur verið að bregðast við þeim biðlista sem myndast hefur hjá Herjólfi nk. sunnudagskvöld með því að nýta ferjuna Baldur til siglinga frá Þorlákshöfn sunnudaginn 19. apríl næstkomandi. Brottför Baldurs: Sunnudagur 19. apríl 2026 kl. 19:30 frá Þorlákshöfn. Sigling Herjólfs sama dag: Sunnudagur 19. apríl kl. 19:45 frá Þorlákshöfn. Athygli er vakin á því […]

Fiskur ríflega helmingur alls vöruútflutnings

Útlit er fyrir að mars hafi verið metmánuður í útflutningsverðmæti sjávarafurða. Alls voru fluttar út sjávarafurðir fyrir 43,8 milljarða króna, sem er það hæsta sem mælst hefur í einum mánuði eins langt aftur og mánaðargögn ná (2002). Gildir þá einu hvort miðað er við krónur eða erlenda mynt, jafnvel að teknu tilliti til verðbólgu erlendis. […]

Milljarðaverkefni í Eyjum: Lægsta tilboð 1,42 milljarðar

Opnun tilboða í viðbyggingu við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja fór fram 14. apríl síðastliðinn og bárust alls fjögur tilboð í verkið. Um er að ræða eitt stærsta framkvæmdaverkefni bæjarins á næstu árum. Lægsta tilboðið barst frá fyrirtækinu Steini og Olli ehf. og hljóðar það upp á 1.421.818.336 krónur. Tilboðið er um 51,7 milljónum króna undir kostnaðaráætlun verksins […]

Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð?

Staðan í samgöngumálum Vestmannaeyja er ekki lengur bara áhyggjuefni heldur er hún orðin óásættanleg. Það er ekki lengur hægt að tala um þetta sem tímabundið ástand eða óheppni. Þetta er staðfestur kerfisbrestur. Á sama tíma og ferðaþjónustan, ein mikilvægasta atvinnugrein landsins, ætti að vera að fara af stað af fullum krafti, eru afbókanir byrjaðar að […]

Kostnaður, kvíði og aðskilnaður

Það er eitthvað verulega skakkt við stöðuna í Vestmannaeyjum þegar verðandi foreldrar neyðast til að taka þá erfiðu ákvörðun að vera fjarri heimili sínu á einu mikilvægasta augnabliki lífsins. Við hjónaleysin stóðum frammi fyrir því nýlega. Eftir skoðun hjá fæðingarlækni var okkur eindregið ráðlagt að halda okkur uppi á landi þar sem fæðingin er handan […]

Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta

Nýleg bilun um borð í Herjólfi hefur enn á ný sýnt hversu viðkvæmar ferjusamgöngur landsins eru. Til að halda uppi samgöngum við Vestmannaeyjar þarf nú að kalla Baldur frá sinni hefðbundnu áætlun á Breiðafirði, sem þýðir skerðingu á samgöngum fyrir íbúa og atvinnulíf við Breiðafjörð. Þetta er ekki einsdæmi heldur endurtekið vandamál. Þegar Herjólfur dettur […]

Fullt hús og góð stemning var í Salnum í gærkvöldi

„Vinir og vandamenn fluttu gömul og ný Eyjalög í Salnum í Kópavogi í kvöld fyrir fullu húsi. Áheyrendur gerðu góðan róm að söng og spili hópsins sem var klappaður upp í lokin. Leifur Geir Hafsteinsson hafði orð fyrir hópnum og sagði frá lögunum sem voru flutt. Nýútkomin plata þeirra, Hve dátt er hér, er nú komin […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.