Í tilkynningu frá bæjaryfirvöldum í Vestmannaeyjum er ástand samgangna við Eyjar sagt óboðlegt og varað við að stefni í neyðarástand.
Fram kemur að Landeyjahöfn sé enn lokuð um miðjan apríl og lítið gangi við dýpkun. Nýjustu mælingar sýni slæma stöðu og óvíst sé hvenær hægt verði að opna höfnina. Dýpkunarskipið Álfsnesið hafi hætt störfum í hafnarmynninu og haldið til Þorlákshafnar þar sem aðstæður reyndust erfiðar.
Jafnframt er bent á að Herjólfur sé bilaður og sigli einungis á annarri skrúfu. Siglingar til Þorlákshafnar geti tekið allt að fjórar klukkustundir og séu háðar veðri, með hættu á kyrrsetningu í vondum aðstæðum.
Samkvæmt tilkynningunni hefur þetta leitt til verulega skertra samgangna, þar sem ferðum hefur fækkað úr sjö á dag í tvær. Biðlistar hafi myndast og flutningar raskast verulega, með áhrifum á atvinnulíf og ferðaþjónustu.
Bæjaryfirvöld setja fram þrjár megin kröfur:
Óskað hefur verið eftir fundi með stjórnvöldum sem fyrst.
Ekki hefur enn borist formlegt svar við erindinu, en fundur með Vegagerðinni og vegamálastjóra er fyrirhugaður á mánudag.