„Vinir og vandamenn fluttu gömul og ný Eyjalög í Salnum í Kópavogi í kvöld fyrir fullu húsi. Áheyrendur gerðu góðan róm að söng og spili hópsins sem var klappaður upp í lokin. Leifur Geir Hafsteinsson hafði orð fyrir hópnum og sagði frá lögunum sem voru flutt. Nýútkomin plata þeirra, Hve dátt er hér, er nú komin á streymisveituna Spotify,“ segir Guðni Einarsson, sem var á tónleikunum í Salnum í gærkvöldi.
Því miður hefur tónleikunum, sem fram áttu að fara í Eldheimum á sunnudaginn, verið frestað um óákveðinn tíma. „Kæru vinir, við höfum tekið þá ákvörðun að fresta tónleikunum sem fram áttu að fara þann 19. apríl vegna slæmrar stöðu samgöngumála. Við auglýsum nýja dagsetningu fljótlega. Okkur þykir þetta að sjálfsögðu mjög leiðinlegt og hlökkum til að sjá ykkur eldhress í Eldheimum. Endilega hlustið á plötuna í millitíðinni og lærið öll lögin,“ segir Leifur Geir Hafsteinsson, talsmaður hópsins, sem er í viðtali í Eyjafréttum sem komu út í gær.
„Alþýðutónlistarhópurinn Vinir og vandamenn, sem að megninu til samanstendur af afkomendum og vinum Oddgeirs Kristjánssonar og Ása í Bæ, býður upp á notalega og hressilega samveru- og söngstund,“ segir um sveitina á Tix.is.
„Á tónleikunum flytjum við lög af nýútkominni plötu okkar, Hve dátt er hér…, þar sem við pússum upp nokkrar af sjaldheyrðari perlum eftir Oddgeir, Ása og Árna Johnsen úr Eyjum, í bland við þekkt og söngvæn Eyjalög, auk eins eða tveggja nýrra laga. Við flytjum lögin í þeim anda sem við teljum að höfundarnir sjálfir hefðu gert í hvíta tjaldinu forðum daga. Við gefum okkur einnig tíma til að skoða tilurð og bakgrunn laganna, rýna í textana og rækta með okkur þakklæti fyrir þann auð sem okkur var gefinn — og næra þannig sameiginlegar Eyjarætur okkar.
Eftir því sem líður á kvöldið aukum við þátttöku áheyrenda og leggjum áherslu á að hver einasti tónleikagestur fái útrás fyrir hina vel þekktu sönggleði Eyjafólks. Í því skyni leggjum við það „heimaverkefni“ fyrir tónleikagesti að læra fyrirfram hið áður óútgefna þjóðhátíðarlag frá 1941, Dagur og nótt í Dalnum, svo allir geti tekið undir af hjartans lyst.
Tónlistararfleifð Vestmannaeyja er einstök. Lög og textar eru órjúfanlega samofin sögu Eyjanna og eru lifandi heimildir um lífsbaráttu, náttúru, menningu, sjómennsku og litríka karaktera bæjarlífsins. Mörg þessara laga hafa öðlast landsfrægð og ódauðleika, en fjöldi þeirra er lítt þekktur utan hóps eldri Eyjamanna. Ef ekki verður brugðist skjótt við er hætta á að sum þeirra glatist — sem væri mikill missir.
Allur ágóði af tónleikunum rennur til áframhaldandi vinnu Vina og vandamanna við varðveislu þessara sjaldheyrðari Eyjalaga. Með því að kaupa miða leggur þú þitt af mörkum til að tryggja að þessi ómetanlegi menningararfur varðveitist um ókomna tíð.“
Sjá viðtal við Leif Geir í nýjasta blaði Eyjafrétta.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.