Baldur fyrr í áætlun vegna biðlista
Baldur á leið frá Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ákveðið hefur verið að bregðast við þeim biðlista sem myndast hefur hjá Herjólfi nk. sunnudagskvöld með því að nýta ferjuna Baldur til siglinga frá Þorlákshöfn sunnudaginn 19. apríl næstkomandi.

Brottför Baldurs:

  • Sunnudagur 19. apríl 2026 kl. 19:30 frá Þorlákshöfn.

Sigling Herjólfs sama dag:

  • Sunnudagur 19. apríl kl. 19:45 frá Þorlákshöfn.

Athygli er vakin á því – í tilkynningu frá Herjólfi ohf. – að ekki er gistipláss um borð í Baldri. Þeir farþegar sem höfðu bókað koju á þeim dögum sem Baldur siglir hafa fengið gistipláss sitt endurgreitt.

Einnig er áréttað að Herjólfur verður úr áætlun á mánudag og þriðjudag, þar sem unnið er að því að taka úr skipinu rafmótor sem sendur verður utan til viðgerðar. Þegar mótorinn hefur verið lagfærður þarf að taka Herjólf aftur úr áætlun tímabundið til að koma mótornum fyrir um borð.

Nýjustu fréttir

Kostnaður við NSL-4 stefnir í 3,1 milljarð – umfang tjónsins enn óljóst
Metþátttöku í Sumarlestri fagnað með lokahófi
Snýr aftur til Eyja með penslana í farteskinu
Landað í lok kvótaárs
100 ára afmælisblað Taflfélagsins – prentútgáfa og vefblað
Anika Hera tekur næsta skref í þjálfun
Farþegum með Herjólfi fækkar um rúm 14 prósent
Tómas Bent og félagar í Hearts tryggðu sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.