Bæjarráð samþykkir að selja hlut í Landsbankanum

Landsbankinn hefur nýtt heimild til að kaupa eigin hluti í bankanum og gaf hluthöfum kost á að selja hluti sína á tímabilinu 2.–13. mars 2026. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja. Bæjarráð ræddi stöðuna og samþykkti samhljóða að selja hlut sveitarfélagsins í bankanum, sem nemur 0,02%, fáist fyrir hann ásættanlegt verð. Sviðsstjóra stjórnsýslu- […]
Lokaumferðin: ÍBV fær topplið Vals í heimsókn

ÍBV tekur á móti toppliði Vals í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja í kvöld þegar lokaumferð Olísdeildar karla fer fram. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og fara allir leikir umferðarinnar fram á sama tíma. Valur er á toppi deildarinnar með 32 stig eftir 21 leik, með 16 sigra og fimm töp. ÍBV situr í fjórða sæti með 27 stig […]
„Meira af loðnu en maður hefur séð í langan tíma“

Skip Vinnslustöðvarinnar hafa lokið loðnuveiðum vertíðarinnar eftir góðan endasprett og tæplega 18 þúsund tonna afla. Skipstjórinn á Gullberginu segir meira af loðnu hafa sést á miðunum í vetur en í langan tíma. Frá þessu er greint á vef Vinnslustöðvarinnar. Að sögn Sindra Viðarssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs hjá Vinnslustöðinni, hefur vertíðin gengið vel. „Við erum búin að […]
Eyjalistinn boðar til félagsfundar

Eyjalistinn heldur félagsfund fimmtudaginn 12. mars klukkan 17 í Líknarsalnum við Faxastíg. Á fundinum verður tillaga uppstillinganefndar um framboðslista Eyjalistans fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 16. maí lögð fram til samþykktar. Allt félagsfólk er hvatt til að mæta og taka þátt í fundinum. Jafnframt er minnt á að þeir sem vilja skrá sig í félagið geta gert […]
Góð aðsókn á fundi Eyþórs

Eyþór Harðarson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn og sækist eftir fyrsta sætinu í prófkjöri flokksins á föstudaginn getur verið ánægður með aðsókn á fundi sem hann boðaði til í Akóges í kvöld. Alls mættu milli 80 og 90 manns á fundinn þar sem Eyþór kynnti sig um leið og hann fór yfir helstu mál sem eru […]
Karla- og kvennalið ÍBV töpuðu í Lengjubikarnum

Karlalið ÍBV tapaði 4-2 gegn Fylki Karlalið ÍBV í fótbolta lék í þriðju umferð Lengjubikars karla gegn Fylki í kvöld. Leiknum lauk með 4-2 sigri Fylkis. Eyjamenn komust í 0–1 með marki frá Hermanni Þór Ragnarssyni á 28. mínútu. Fylkismenn jöfnuðu á 40. mínútu. Vicente Valor kom ÍBV yfir á nýjan leik rétt fyrir hálfleiksflautið. […]
Heimaey í dag

Það kennir ýmissa grasa í yfirferð Halldórs B. Halldórssonar um Heimaey í dag. Meðal annars fer hann með okkur rúnt um Íþróttamiðstöðina en þar stendur til að byggja við. Bæjaryfirvöld hafa óskað eftir tilboðum í svokallaða klefabyggingu. Um er að ræða tveggja hæða steinsteypta viðbyggingu við Íþróttamiðstöðina Vestmannaeyjum með léttbyggðu þaki. Á fyrstu hæð verði […]
Besta rekstrarafkoma í 15 ár

Rekstur Vestmannaeyjabæjar jákvæður um 781 milljón Ársreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2025 var tekinn til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í dag. Ársreikningurinn sýnir glögglega sterka stöðu bæjarsjóðs, jákvæða rekstrarafkomu, góða eignastöðu og litlar skuldir. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Vestmannaeyjabæ. Heildarrekstrartekjur samstæðu Vestmannaeyjabæjar voru 10.730 m.kr. og rekstrargjöld 9.553 m.kr. Rekstrarafkoma samstæðunnar (A og B hluta) var jákvæð um rúmar 781 m.kr. sem er […]
Vel heppnaðri loðnuvertíð að ljúka

„Ísfélagið er á síðustu metrunum í loðnuveiðinni. Heimaey og Sigurður bíða löndunar í Eyjum og Suðurey er á leið til Þórshafnar. Við eigum eftir að veiða tæp 2000 tonn og klárast okkar kvóti vonandi fyrir helgi. Álsey verður á miðunum á morgun fimmtudag,“ sagði Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins í morgun. Sama er uppi á teningnum […]
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla á Hraunbúðum og sjúkrahúsi

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins verður bæði á sjúkrahúsinu og á Hraunbúðum. Þeir sem dveljast á þessum stöðum og geta ekki mætt á kjörstað geta því greitt atkvæði þar. Atkvæðagreiðsla á báðum stöðum fer fram á morgun, fimmtudag 12. mars. Á sjúkrahúsinu verður kosið kl. 12:30 en á Hraunbúðum kl. 14:15. Fulltrúar kjörstjórnar munu mæta á […]