Karla- og kvennalið ÍBV töpuðu í Lengjubikarnum
Vicente Valor skoraði fyrir karlalið ÍBV gegn Fylki. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV tapaði 4-2 gegn Fylki

Karlalið ÍBV í fótbolta lék í þriðju umferð Lengjubikars karla gegn Fylki í kvöld. Leiknum lauk með 4-2 sigri Fylkis.

Eyjamenn komust í 0–1 með marki frá Hermanni Þór Ragnarssyni á 28. mínútu. Fylkismenn jöfnuðu á 40. mínútu. Vicente Valor kom ÍBV yfir á nýjan leik rétt fyrir hálfleiksflautið. Fylkismenn svöruðu hins vegar með þremur mörkum og lokastaðan 4-2 fyrir Fylki.

ÍBV er í fimmta sæti í riðli 4 í A-deild, með fjögur stig. Eyjamenn eiga eftir að spila gegn Breiðablik og Þrótti en þeir leiktímar hafa ekki verið staðfestir.

Kvennalið ÍBV tapaði gegn Breiðablik

Kvennalið ÍBV spilaði í þriðju umferð Lengjubikarsins gegn Breiðablik í gærkvöld. Leiknum lauk 7-0 sigri Breiðabliks. 

Nokkuð vantaði í lið Eyjakvenna en lykilleikmennirnir Allison Patricia Clark, Sandra Voitane og Kristín Klara Óskarsdóttir voru ekki á leikskýrslu í leiknum. Allison og Sandra glíma við meiðsli og Kristín Klara er í verkefni með u-17 ára landsliði Ísland. 

ÍBV er í neðsta sæti í riðli 2 í A-deild, með eitt stig. Þær eiga eftir að spila einn leik til viðbótar og er hann gegn Víking Reykjavík.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.