Vel heppnaðri loðnuvertíð að ljúka
Mynd Óskar Pétur.

„Ísfélagið er á síðustu metrunum í loðnuveiðinni. Heimaey og Sigurður bíða löndunar í Eyjum og Suðurey er á leið til Þórshafnar. Við eigum eftir að veiða tæp 2000 tonn og klárast okkar kvóti vonandi fyrir helgi. Álsey verður á miðunum á morgun fimmtudag,“ sagði Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins í morgun.

Sama er uppi á teningnum hjá Vinnslustöðinni nema að þar er kvótinn búinn. „Við erum búin að veiða allar okkar heimildir í loðnu og erum að landa síðustu förmunum. Ættum að klára vinnslu um helgina,“ sagði Sindri Viðarsson sviðsstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar þegar rætt var við hann í hádeginu.

„Við erum virkilega ánægð með hvernig vertíðin hefur gengið og framleiðslan hefur verið í takt við áætlanir,“ sagði Sindri.

Samtals ráða Ísfélag og Vinnslustöð yfir þriðjungi heildarkvótans og er Ísfélagið með 30.000 tonn og Vinnslustöðin 20.000 tonn. Stærsti hlutinn var unninn til manneldis, loðnan fryst og hrognin unnin á lokasprettinum.

Nýjustu fréttir

Tölum um heilabilun – fræðsla í Vestmannaeyjum
Starfshópur mótar nýja ferjuáætlun
Haustið farið af stað hjá Fimleikafélaginu Rán
Ægisgata 2 sett aftur á sölu
Milena fer á æfingamót í Portúgal með u-17 ára landsliðinu
Einhugur býður upp á fræðslu með HARTS
Fleiri sóttu um iðnnám en komust að í haust
Myndband sýnir varhugaverðar aðstæður við Ofanleitishamar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.