5. bekkur kynnti sér loðnuna í uppsjávarvinnslu VSV

Nemendur í 5. bekk Grunnskóla Vestmannaeyja heimsóttu uppsjávarvinnslu Vinnslustöðvarinnar í lok síðustu viku þar sem þau kynntu sér loðnuna, fisk árgangsins. Alls tóku 55 nemendur þátt í heimsókninni sem er árlegur liður í samstarfi skólans og fyrirtækisins. Fjallað er um heimsóknina á vefsíðu Vinnslustöðvarinnar. Að sögn Lilju Bjargar Arngrímsdóttur, mannauðsstjóra Vinnslustöðvarinnar, voru þetta alls 55 […]

Kallar eftir tafarlausum úrbótum

Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins flutti í dag ræðu undir liðnum störf þingsins á Alþingi þar sem hann gagnrýndi ástand samgangna til Vestmannaeyja og lokun Landeyjahafnar. Í ræðu sinni benti Karl Gauti á að loðnuvertíðin stæði nú sem hæst. Frystingu væri víðast hvar að ljúka og verksmiðjur að hefja hrognavinnslu. Verðmætasköpunin væri því í fullum […]

Kokkurinn heldur áhöfninni gangandi  

Loðnuvertíðin er annasamur tími fyrir sjómenn og til að halda orkunni og stemningunni uppi skiptir góð næring og vel skipulagt eldhús máli. Hólmgeir Austfjörð eða Geiri eins og hann er oft kallaður starfar um borð í Heimaey VE 1 og kokkar þegar Jónas er fríi. Hólmgeir þekkir því vel hvað þarf til að halda áhöfninni ánægðri og vel nærðri á miðunum.  Geiri hefur […]

Þegar þú lend­ir í svona ferðu að hugsa hlut­ina allt öðru­vísi

Það er bara mikilvægt að tala, tjá sig og opna sig bara. Af því að þú færð frekar stuðning heldur en hitt og ég held að það sé líka bara gott fyrir sálina að tala um þetta.Eyjamaðurinn og stórkokkurinn Einar Björn Árnason, Einsi kaldi greindist með lungnakrabbamein í byrjun árs 2021. Hann er þakklátur fyrir […]

Álfsnes úr leik vegna bilunar

Alfsnes 06 24 IMG 5443 2

Bilun kom upp í vél fyrir bógskrúfu á dýpkunarskipinu Álfsnesinu í nótt, þar sem unnið var að dýpkun Landeyjahafnar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Vegagerðarinnar. Þar segir jafnframt að af þeim sökum sé ekki unnt að halda dýpkunarframkvæmdum áfram fyrr en búið er að gera við bilunina og skipta um viðkomandi búnað. Unnið […]

Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu

Fjórtán gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí nk. Prófkjörið verður föstudaginn 13. mars og stefnt er á að hefja  utankjörfundaratkvæðagreiðslu á morgun, þriðjudaginn 3. mars í Ásgarði. Hægt verður að kjósa milli 16:00 til 18:00 virka daga og kl. 13:00 til 15:00 um helgar. Trausti Hjaltason opnaði kosningaskrifstofu í […]

Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn

ithrottam

Skiptar skoðanir komu fram á síðasta fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja þegar tímabundið samkomulag um rekstur heilsuræktar var til umræðu. Umræðan snerist að nýju útboði sveitarfélagsins um uppbyggingu og rekstur heilsuræktar við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Eins og Eyjafréttir hafa fjallað um felur útboðið í sér 15 ára sérleyfissamning um rekstur stöðvarinnar, sölu byggingaréttar og byggingu nýrrar viðbyggingar. Bæði […]

Davíð Oddsson fallinn frá

Davíð Oddsson, fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins, borgarstjóri, forsætisráðherra, seðlabankastjóri og síðast ritstjóri Morgunblaðsins varð bráðkvaddur á heimili sínu í gær, 1. mars. Davíð fæddist í Reykjavík 17. janúar 1948. „Með Davíð er horfinn af vettvangi einn áhrifamesti stjórnmálamaður í sögu lýðveldisins og að mínu mati einn sá allra merkasti. Hann var leiðtogi af sjaldgæfri stærð, skýr […]

ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki

ÍBV og Valur mættust í úrslitaleik Powerade bikars 3. flokks karla í handbolta í dag. ÍBV strákarnir gerðu líkt og stelpurnar fyrr um daginn og tryggðu sér bikarmeistartitilinn með þriggja marka sigri, 37-34. Valsmenn byrjuðu leikinn betur og voru yfir á fyrstu fimmtán mínútum leiksins. Eyjamenn hins vegar stigu upp og snéru leiknum sér í […]

Dýpið mælt í Landeyjahöfn

alfsnes_landey_tms

Dýpi var mælt í Landeyjahöfn fyrr í dag, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf. Eins og sést á myndinni hér að neðan er dýpi ekki nægilegt fyrir ferjuna til þess að sigla til og frá höfninni. Aðstæður eru sambærilegar og þegar dýpi var mælt síðast. Af þessum sökum verður áfram siglt til og frá Þorlákshöfn […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.