Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Trausti ávarpar gesti á kosningaskrifstofunni.
Hluti gesta á opnun skrifstofunnar sem verður opin alla daga fram að prófkjöri. Fremst er Unnur Líf Ingadóttir Imsland kennari, eiginkona Trausta. 

Fjórtán gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí nk. Prófkjörið verður föstudaginn 13. mars og stefnt er á að hefja  utankjörfundaratkvæðagreiðslu á morgun, þriðjudaginn 3. mars í Ásgarði. Hægt verður að kjósa milli 16:00 til 18:00 virka daga og kl. 13:00 til 15:00 um helgar.

Trausti Hjaltason opnaði kosningaskrifstofu í gær, en hann gefur kost á sér í fyrsta sætið í prófkjörinu. Skrifstofan er á efri hæð í gamla TM húsinu þar sem áður var skrifstofa Laxeyjar og Fiskistofu við Strandveg. Þar verður opið alla daga fram að prófkjöri.

„Það var góð mæting á opnunina og ég er bjartsýnn á árangur. Tíminn er fljótur að líða og eins gott að láta hendur standa fram úr ermum,“ segir Trausti sem teflir fram á mörgum vígstöðvum í baráttunni.

 

 

Nýjustu fréttir

Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör með þjóðhátíðarlagið
Spurt og svarað: Hildur Rún frá Eyjalistanum
ÍBV á útivelli gegn Val
Aldan enn of há fyrir Álfsnes
Kjarnaboranir hefjast í Eyjum: „Stærsti áfangi í sögu félagsins til þessa“
Vel heppnaður fundur
Krefjandi umræða styrkir okkur
Viðbragð við svari Eyþórs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.