Davíð Oddsson fallinn frá
Þingmenn og ráðherrar í heimsókn í Eyjum í ágúst 1999. Davíð Oddsson, Drífa Hjartardóttir, Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri, Sturla Böðvarsson og Sigurður Einarsson. Mynd Sigurgeir Jónasson.

Davíð Oddsson, fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins, borgarstjóri, forsætisráðherra, seðlabankastjóri og síðast ritstjóri Morgunblaðsins varð bráðkvaddur á heimili sínu í gær, 1. mars. Davíð fæddist í Reykjavík 17. janúar 1948.

„Með Davíð er horfinn af vettvangi einn áhrifamesti stjórnmálamaður í sögu lýðveldisins og að mínu mati einn sá allra merkasti. Hann var leiðtogi af sjaldgæfri stærð, skýr í sýn, sterkur í sannfæringu og með hæfileika til að móta samfélagið með hugmyndum sínum og forystu,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins sem minnist Davíðs Oddsonar í færslu á Facebook í morgun. Hún segir tíðindin af andláti hans þung og sorgleg.

Hún segir tímabilið sem Davíð gegndi embætti fosætisráðherra, árin 1991–2004, af mörgum talið mesta blómaskeið lýðveldissögunnar.

„Fyrir okkur sjálfstæðismenn var hann meira en stjórnmálamaður. Hann var leiðtogi sem mótaði heila kynslóð,“ segir Guðrún.

Nýjustu fréttir

Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Erlingur hefur snúið gengi Minden við – þrír sigrar í röð
Telja að tilkynna megi um vernd 1,6% hafsvæða
ÍBV og Fram mætast í toppslag í Eyjum
Bikarævintýri ÍBV 2 heldur áfram gegn Þór í dag
ÍBV vann sex marka sigur á Þór
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.