Mikilvægur heimaleikur hjá ÍBV

ÍBV tekur á móti Stjörnunni í Olísdeild kvenna í handbolta í dag, laugardag, þegar 17. umferð deildarinnar lýkur með þremur leikjum. Leikurinn hefst klukkan 13:00 í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. ÍBV í öðru sæti Eyjakonur hafa átt afar gott tímabil til þessa og sitja í öðru sæti deildarinnar með 26 stig eftir 16 leiki. Liðið hefur unnið 13 […]

Vetrarbúningur í Vestmannaeyjum

Vestmannaeyjar tóku á sig fallegan vetrarbúning eftir snjókomuna í gær. Bjart veður og stilla settu svip sinn á daginn og mátti víða sjá snæviþaktar hlíðar og húsþök glitra í sólarljósinu. Halldór B. Halldórsson fangaði stemninguna á myndbandi sem fylgir fréttinni, þar sem eyjarnar njóta sín í tærri vetrarbirtu. Tökum flugið með Halldóri. (meira…)

Geri aðrir betur

Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja með meiru vakti í vikunni athygli á einstökum viðburði í sögu ÍBV. Það hefur lengi verið eitt helsta metnaðarmál ÍBV að meistaraflokkar félagsins leiki í efstu deildum karla og kvenna – bæði í handbolta og fótbolta. Þetta tekst ekki alltaf en er sem betur fer staðan núna! „Það er afar […]

Í snjó og blíðu

Eftir talsverða ofankomu í gær brast á með brakandi blíðu í dag. Allt hvítt og sólin farin að skína. Vestmannaeyjar skarta sínu fegursta í kyrrðinni sem fylgir nýföllnum snjó, þar sem birtan endurkastast af hvítum fjallshlíðum og þökum bæjarins. Myndbandið sem fylgir var tekið af Halldóri B. Halldórssyni og fangar einstaklega vel þetta augnablik þegar […]

Búningaskiptimarkaður á bókasafninu

Það styttist í Öskudaginn og eflaust margir krakkar og foreldrar farnir að huga að búningum fyrir daginn. Bókasafn Vestmannaeyja hefur brugðið á það ráð að setja upp skemmtilegan búningaskiptimarkað til að auðvelda undirbúning fyrir daginn. Markaðurinn er hugsaður sem einföld og umhverfisvæn leið fyrir fjölskyldur og einstaklinga til að endurnýta búninga fyrir hátíðina. Hægt er […]

Morgan Goði skrifar undir nýjan samning við ÍBV

Morgan Goði Garner hefur skrifað undir nýjan leikmannasamning við handknattleiksdeild ÍBV sem gildir út tímabilið 2027/28. Morgan er uppalinn í ÍBV og er nú að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki eftir að hafa farið í gegnum yngri flokka félagsins. Hann hefur sýnt stöðugar framfarir og mikinn metnað, og bindur félagið miklar vonir við framhald […]

Opnunarhátíð Sea Life um helgina

Þann 14. og 15. febrúar, n.k. verður opnunarhátíð í Sea Life Beluga Whale Sanctuary. Hátíðin stendur frá kl. 11:00 til 16:00 báða dagana. Boðið verður upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir gesti og fjölskyldur. Á milli kl. 13:00 og 15:00 verður opninn markaður þar sem nokkrar verslanir í Eyjum verða með sölubása. Aðgangur verður ókeypis þessa […]

Tilboð samþykkt í gatnagerð í Sólhlíð

Solhlid 1124 Hbh Skjask

Tilboð í gatnagerð og fráveituframkvæmdir í Sólhlíð voru opnuð 6. febrúar síðastliðinn. Alls bárust tvö tilboð í verkið. Gröfuþjónusta Brinks ehf. reyndist lægstbjóðandi með tilboð upp á 82.297.019 krónur. HS Vélaverk ehf. bauð 98.987.989 krónur í framkvæmdina, en kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 103.308.500 krónur. Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að taka tilboði Gröfuþjónustu Brinks […]

Siglt í Landeyjahöfn – uppfært

Herjólfur setur stefnuna á Landeyjahöfn og siglir eina ferð til Landeyjahafnar fyrri part dagsins. Þetta segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.  Brottför er frá Vestmannaeyjum kl. 07.00 og frá Landeyjahöfn kl. 10.45. Hvað varðar siglingar seinni partinn verður gefin út tilkynning fyrir kl. 15:00 í dag. Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli […]

Höfnin kaupir dráttarbát

Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs í vikunni voru samþykkt bátakaup fyrir Vestmannaeyjahöfn. Þetta eru fyrstu bátakaup hafnarinnar frá því að Lóðsinn var smíðaður en hann var afhentur Vestmannaeyjahöfn árið 1998, segir í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar. Báturinn er af gerðinni StanTug 1205 frá Damen og er hann 13 metra langur og 5,3 metrar á breidd, […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.