Morgan Goði skrifar undir nýjan samning við ÍBV

Morgan Goði Garner hefur skrifað undir nýjan leikmannasamning við handknattleiksdeild ÍBV sem gildir út tímabilið 2027/28.

Morgan er uppalinn í ÍBV og er nú að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki eftir að hafa farið í gegnum yngri flokka félagsins. Hann hefur sýnt stöðugar framfarir og mikinn metnað, og bindur félagið miklar vonir við framhald hans á næstu árum.

„Við erum gríðarlega ánægð með að halda Morgan innan raða félagsins og hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi þróun hans,“ segir í tilkynningu frá handknattleiksdeild ÍBV. Þess má geta að Morgan Goði kom inn á fyrir Petar Jokanovic um miðjan fyrri hálfleik í leik ÍBV og Aftureldingar í gær og átti frábæran leik. Hann varði 14 skot í marki Eyjamanna.

Nánar má lesa um leikinn hér.

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.