Höfnin kaupir dráttarbát
Báturinn er af gerðinni StanTug 1205 frá Damen og er hann 13 metra langur og 5,3 metrar á breidd, með 9 tonna dráttargetu. Mynd/vestmannaeyjar.is

Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs í vikunni voru samþykkt bátakaup fyrir Vestmannaeyjahöfn. Þetta eru fyrstu bátakaup hafnarinnar frá því að Lóðsinn var smíðaður en hann var afhentur Vestmannaeyjahöfn árið 1998, segir í frétt á vef Vestmannaeyjabæjar.

Báturinn er af gerðinni StanTug 1205 frá Damen og er hann 13 metra langur og 5,3 metrar á breidd, með 9 tonna dráttargetu og tvær skrúfur sem auka stjórnhæfni við erfiðar aðstæður. Báturinn er keyptur á rétt rúmar 110 milljónir króna.

Báturinn er keyptur frá Kanada og ber í dag nafnið Dalton Defender. Tveir starfsmenn Vestmannaeyjahafnar fóru til St. John’s í Kanada í byrjun mánaðar til að skoða vinnu- og dráttarbátinn Dalton Defender með möguleg kaup í huga. Báturinn kom vel út úr þessari skoðun en hann var smíðaður árið 2017 í klassa Bureau Veritas og var fyrst gerður út frá Svíþjóð.

Báturinn þykir öflugur og vel útbúinn og hefur einungis verið keyrður um 4.800 tíma. Báturinn á að afhendast í Argentia í Kanada þaðan sem hann verður fluttur til Íslands um miðjan mars.

Með þessum bátakapum er verið að koma til móts við að umsvif hafnarinnar hafa aukist verulega á undanförnum árum en frá aldamótum hefur skipakomum sem þarfnast þjónustu fjölgað um rúmlega 40%. Framundan eru enn stærri verkefni, meðal annars tengd uppbyggingu við Gjábakkakant þar sem gert er ráð fyrir móttöku allt að 20.000 brúttótonna skipa. Til þess að sinna slíkum skipum er í flestum tilfellum nauðsynlegt að hafa tvo dráttarbáta til taks, segir að endingu í fréttinni.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.