Nóvemberblað Eyjafrétta komið út
Nýr læknir í Eyjum, fréttaskýring um útboð heilsuræktar og séra Viðar við trommurnar
Áskrifendur geta sótt nýjasta vefblaðið á vef Eyjafrétta.

Nóvemberblað Eyjafrétta er komið út. Á forsíðunni eru norski læknirinn Mads Aanesen og fjölskylda hans með pysju í fyrstu heimsókn sinni til Vestmannaeyja. Í viðtali við Anniku Vignisdóttur segir Mads frá því hvernig leið fjölskyldunnar lá óvænt til Eyja og hvernig þau hafa fundið sig í samfélaginu. Hann hefur tekið til starfa hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Í blaðinu er einnig rætt við Áslaugu Dísi Bergsdóttur, lækni á HSU, sem sneri heim til Eyja eftir tæpa tvo áratugi á höfuðborgarsvæðinu.

Í fréttaskýringu er farið yfir fjárhagsáætlunina að baki útboði á uppbyggingu og rekstri heilsuræktar við Íþróttamiðstöðina og forsendur kröfunnar um milljarð króna í eigið fé. Þá er fjallað um kostnað við salernisframkvæmdir á Vigtartorgi og leyfisferlið. Arndís Bára Ingimarsdóttir lögreglustjóri ræðir fjölgun skráðra ofbeldisbrota og hvað fyrirhugaðar breytingar á lögregluembættum gætu þýtt fyrir löggæslu í Eyjum.

Kitty Kovács rifjar upp uppvöxtinn í Ungverjalandi, ástina á píanóinu og leiðina að orgelinu í Landakirkju. Séra Viðar Stefánsson sest við trommurnar á útskriftartónleikum sínum á Háaloftinu 19. nóvember og segir frá því hvernig hann tók upp kjuðana. Þá ræðir Frosti Gíslason framtíð Fab Lab í Eyjum eftir að hann og Ingibjörg Grétarsdóttir tóku við rekstrinum.

Við lítum inn hjá Birtu og Andra og sjáum hvernig heimili þeirra hefur breyst með stækkandi fjölskyldu. Nina Anna Dau, sérkennari í Hamarsskóla, segir frá því hvernig börn fóta sig í nýju tungumáli og skólasamfélagi. Einar Gunnarsson skólastjóri er Eyjamaður mánaðarins og Elí Þór Vídó ræðir Eyjaræturnar og hlaðvarpið Mjólkurhúsið. Þá kemur fram hvaða átján fyrirtæki í Eyjum eru á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki ársins.

Í íþróttahlutanum segir Hallgrímur Heimisson frá Bubka Sports Lab, nýjum vettvangi fyrir leikmenn og þjálfara. Knattspyrnukonan Edda Dögg Sindradóttir, íþróttamaður mánaðarins, lítur yfir tímabilið með ÍBV og segir frá draumnum um atvinnumennsku.

Efnisyfirlitið á bls. 2 er smellanlegt. Smellið á fyrirsögn þar til að fara beint í greinina. Það sama gildir um efnisvísanirnar á forsíðunni.

Nýja tölublaðið er aðgengilegt öllum áskrifendum á vef Eyjafrétta. Þeir sem vilja gerast áskrifendur geta skráð sig hér. Þeir áskrifendur sem eiga enn eftir að virkja rafræna áskrift geta haft samband hér.

Nýjustu fréttir

Nóvemberblað Eyjafrétta komið út
Eyjamenn geta farið upp fyrir Aftureldingu með sigri
Lions býður upp á fría blóðsykursmælingu
ÍBV tekur við dósamóttökunni í febrúar
Skóladagurinn góð upplifun 
Erlingur og lærisveinar úr leik í þýsku bikarkeppninni
Þrjú íþróttafélög í Eyjum fá rúma milljón úr Hvatasjóði
Spyr hvort Herjólfur III verði varaskip í Eyjum í vetur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.