Tap gegn Gróttu
Grótta vann sinn ann­an sig­ur í Olís­deild kvenna í hand­bolta í dag er þær höfðu bet­ur gegn ÍBV á Nes­inu. Loka­töl­ur urðu 25:20 í hröðum leik og stór­skemmti­leg­um leik. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.
Heima­kon­ur í Gróttu byrjuðu bet­ur og skoruðu þrjú fyrstu mörk leiks­ins. �?ær héldu svo yf­ir­hönd­inni og komust mest fjór­um mörk­um yfir í fyrri hálfleik og var staðan 10:6 þegar tíu mín­út­ur voru eft­ir af hon­um.
�?á kom fínn kafli hjá Eyja­kon­um sem minnkuðu mun­inn hægt og ró­lega. Hann var kom­inn niður í eitt mark fyr­ir hálfleik og var staðan í leiklhléi 13:12, Gróttu í vil.Gróttu­kon­ur voru vænt­an­lega ósátt­ar við að mun­ur­inn var ekki meiri í hálfleik en þær gerðu sig seka um fjölda mistaka í sókn­ar­leik sín­um og hefði for­skotið hæg­lega getað verið meira.
Gróttu­kon­ur var mikið betra liðið í seinni hálfleik náðu þær fljót­lega fínu for­skoti enÍBV skoraði ekki í rúm­ar tíu mín­út­ur um miðjan hálfleik­inn. Grótta nýtti sér það og komst í 22:15 en því for­skoti náði ÍBV aldrei að ógna og því fór sem fór.
Mbl.is greinir frá.

Nýjustu fréttir

Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.