Þetta var fullkomið

The puffin run fór fram í blíðskapar veðri á laugardaginn. Um 160 mans tóku þátt í hlaupinu sem tókst afar vel til. Magnús Bragason einn af skipuleggjendum hlaupsins sagði í samtali við Eyjafréttir að þetta hefði verið fullkomið, „Þetta var fullkomið, hefði ekki getað tekist betur,“ sagði Magnús.

Þórólfur Ingi Þórsson sigraði hlaupið en hann hljóp 20km á 1:24mín. Veitt voru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin bæði í karla og kvennaflokki og fyrstu sætin fyrir hópana sem skiptu með sér hlaupinu. Sigurvegari í kvennaflokki va rRagnheiðu Sveinbjörnsdóttir en hún sló einnig brautarmet kvenna síðan í fyrra. Hægt er að sjá úrslit hlaupsins hérna. 

Ljósmyndari Eyjafrétta Óskar Pétur Friðriksson var á svæðinu og hægt er að sjá myndirnar hér að neðan. Einnig má sjá hér fyrir neðan myndband þegar Þórólfur kemur fyrstur í mark og dætur hans taka á móti honum. „Þetta var ótrúlega gaman. Þetta er skemmtilegasta og fallegasta útivist sem ég hef stundað,“ segir Þórólfur í myndbandinu.

Nýjustu fréttir

Bongóblíða í Eyjum
Siglt á flóði til Landeyjahafnar
Hildur Sólveig sjúkraþjálfari: ,,Best að taka eitt skref í einu”
Svona hefð og svona stund styrkir samfélagið
Bæjareign við Ægisgötu sett í sölu
Eyjaliðin í eldlínunni í dag
Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.