Munavarsla hefur verið í boði á Þjóðhátíð í mörg ár, fyrst í gámum en flutti inn í Herjólfsbæ þegar hann reis fyrir nokkrum árum. Þar er aðstaða til fyrirmyndar og geta þeir sem nýta sér þjónustu munavörslunnar gengið að hlutunum vísum þegar þeir þurfa á þeim að halda. Þetta er þakklátt starf enda mikill munur að geta gengið að hlutunum vísum í stað þess að sitja uppi allslaus eftir að farið hefur verið ránshendi um tjaldið. Einnig er boðið upp á hleðslu fyrir síma sem er mjög vinsælt meðal þjóðhátíðargesta. Óskar Pétur Friðriksson hefur starfað við munavörsluna undanfarin ár og á þeim tíma hefur aðeins einn sími tapast og var hann greiddur á staðnum.