�?etta er þakklátt starf
Munavarsla hefur verið í boði á Þjóðhátíð í mörg ár, fyrst í gámum en flutti inn í Herjólfsbæ þegar hann reis fyrir nokkrum árum. Þar er að­staða til fyrirmyndar og geta þeir sem nýta sér þjónustu munavörsl­unnar gengið að hlutunum vísum þegar þeir þurfa á þeim að halda. Þetta er þakklátt starf enda mikill munur að geta gengið að hlutunum vísum í stað þess að sitja uppi alls­laus eftir að farið hefur verið ráns­hendi um tjaldið. Einnig er boðið upp á hleðslu fyrir síma sem er mjög vinsælt meðal þjóðhátíðargesta. Óskar Pétur Friðriksson hefur starf­að við munavörsluna undanfarin ár og á þeim tíma hefur aðeins einn sími tapast og var hann greiddur á staðnum.

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.