Eðlilegra að heyra í manni hljóðið áður en lagt var af stað

„Það hefur tvisvar verið haft samband við mig vegna þessarar myndar en í bæði skiptin var það eftir að búið var að ákveða að gera hana. Hefði kannski verið eðlilegra að heyra í manni hljóðið áður en lagt var af stað en greinilega hefur maður lítið að segja um þetta.“ sagði Guðlaugur Friðþórsson, um myndina […]
�?etta er þakklátt starf

Munavarsla hefur verið í boði á Þjóðhátíð í mörg ár, fyrst í gámum en flutti inn í Herjólfsbæ þegar hann reis fyrir nokkrum árum. Þar er aðstaða til fyrirmyndar og geta þeir sem nýta sér þjónustu munavörslunnar gengið að hlutunum vísum þegar þeir þurfa á þeim að halda. Þetta er þakklátt starf enda mikill munur […]
Áætlar að í gærkvöldi hafi sjö þúsund verið í Eyjum
Mikill fjöldi gesta eru nú þegar mættir á þjóðhátíð Vestmannaeyja og í gærkvöldi áætlar lögregla að á sjöunda þúsund manns hafi verið komnir til Eyja og stöðugt hafi bæst við í nótt og morgun. Töluverður erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum sl. nótt. Sex fíkniefnamál komu upp í gærkvöldi og í nótt, í einu málinu […]
Tveggja tíma akstur frá Reykjavík til Landeyjahafnar

Þeir sem hyggjast aka frá Reykjavík til Landeyjarhafnar þurfa að gera ráð fyrir 2 klukkustunda akstri ef aðstæður eru góðar. Hafa skal í huga að á leiðinni er ekið í gegnum þrjá þéttbýliskjarna þar sem hraði er takmarkaður miðað við það sem almennt gerist á leiðinni. Um Verslunarmannahelgina má án efa búast við mikilli umferð […]
Herjólfur tafðist um þrjá tíma

Þriggja tíma töf var á ferð Herjólfs frá Landeyjahöfn til Vestmannaeyja í nótt. Skipið sem átti að leggja af stað klukkan þrjú fór ekki fyrr en klukkan sex í morgun. Óhagstæð sjávarskilyrði urðu til þess að ekki var nóg dýpi í höfninni og sat Herjólfur fastur um tíma. Verið er að athuga með ferðina klukkan […]