„Við tókum við þessu úr höndum Bjarna núna um mánaðarmótin,“ segir Guðmundur Karl Steindórsson, ritstjóri og eigandi Sunnlenska fréttablaðsins. Guðmundur og eiginkona hans Jóhanna Sigríður Hannesdóttir, keyptu blaðið af Bjarna Harðarsyni, þingmanni Framsóknarflokksins, en hann hafði átt blaðið um nokkurt skeið.