ÍBV lagði Fylki að velli 3:1 í kvöld á Hásteinsvelli. Leikurinn var nokkuð kaflaskiptur því Fylkismenn voru mun betri fyrsta stundarfjórðunginn en næstu 45 mínútur leiksins voru það heimamenn sem voru sterkari. Á þeim tíma skoruðu þeir þrjú mörk en Eyjamaðurinn í liði Fylkis, markahrókurinn Tryggvi Guðmundsson minnkaði muninn fyrir gestina. Það var jafnframt 131. mark hans í efstu deild frá upphafi.