Tilraun til innbrots, fíkniefni og umferðaróhapp
Mynd: Facebook/Lögreglan í Vestmannaeyjum

Helstu verkefni lögreglunnar í Vestmannaeyjum vikuna 14. til 20. janúar 2019.

Einn fékk að gista fangageymslur lögreglu um helgina en hann var handtekinn við að reyna að komast inn í íbúð sem hann átti ekkert erindi í. Honum var sleppt lausum eftir að víman var runnin af honum.

Tvö fíkniefnamál komu upp í liðinni viku. Að kvöldi 16. janúar sl. fannst töluvert magn kanabisefna við húsleit og voru þrír aðilar, tveir karlmenn og ein kona, handteknir í framhaldi af því. Þeim var sleppt að skýrslutökum loknum og er málið talið að mestu upplýst.

Síðdegis þann 17. janúar sl. var karlmaður handtekinn þegar hann var að taka á móti pakka á flugvellinum í Vestmannaeyjum. Í pakkanum reyndist vera nokkuð magn af kannabisefnum og viðurkenndi maðurinn að hafa átt von á sendingunni. Málið telst að mestu upplýst.

Einn ökumaður var stöðvaður í vikunni vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í liðinni viku en þarna lenti bifreið, sem ekið var eftir Flötum, á húsvegg þegar að ökumaðurinn reyndi að koma í veg fyrir árekstur, eftir að annarri bifreið var ekið í veg fyrir hann.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.