Aukaflug hafa verið sett upp undanfarið til Vestmannaeyja vegna mikillar eftirspurnar. Flugfélagið Ernir hefur nú þegar bætt við aukaflugi næsta föstudag 13.des. Farið verður frá Reykjavík 14:15 og frá Eyjum 15:00 og er fólk kvatt til að bóka tímanlega á www.ernir.is því ekki er víst að fleiri aukaflug verði sett upp þann dag. Mjög vel er fylgst með bókunum til Eyja og mun félagið setja upp aukaflug eins og kostur er þegar fer að fyllast í þau flug sem fyrir eru.
�?ess má geta að í aukaflugið á föstudaginn hefur verið sett töluvert af nettilboðum og þvi um að gera að hafa hraðar hendur til að ná ódýru flug til eða frá Eyjum.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst