Féló bíður upp á nýjung hjá sér það sem opnað hefur verið svokallaðð sköpunarhús. Hugmyndin er að unglingar og ungt fólk fái tækifæri til að koma í stúdíó og vinna að eigin tónlist undir leiðsögn starfsmanns. Verkefninu er ætlað að efla sköpun og áhuga á tónlist í hvetjandi umhverfi.
Boðið verður upp á kynningardaga 9. – 11. febrúar þar sem þátttakendur geta komið, skoðað aðstöðuna og prófað sig áfram í stúdíóvinnu.
8.-10. bekkur
Mánudag 9. febrúar kl. 19.30–22.00
Miðvikudag 11. febrúar kl. 19.30–22.00
16–20 ára
Þriðjudag 10. febrúar kl. 20.00–22.00
Að lokinni kynningarvikunni verður frekari opnunartími auglýstur.
Sköpunarhúsið er spennandi viðbót við starfsemi Féló og býður ungu fólki upp á tækifæri til að þróa hæfileika sína, prófa hugmyndir og kynnast tónlistarsköpun.