Nú liggur fyrir að Tonny Mawejje og Azis Kemba, leikmenn ÍBV munu ekki spila á HM í Brasilíu næsta sumar. Úganda tapaði fyrir Senegal í kvöld, 1:0 á útivelli en leikurinn var hreinn úrslitaleikur um það hvort liðið kæmist í umspil um laus sæti á HM. Úganda þurfti sigur en Senegal dugði jafntefli.