Tonny Mawejje, leikmaður ÍBV hefur heldur betur reynst þjóð sinni vel síðustu daga á knattspyrnuvellinum. Tonny tryggði Úganda sigurinn á Angóla í dag í undankeppni HM. Angóla komst yfir snemma í síðari hálfleik en Úgandamenn jöfnuðu sjö mínútum fyrir leikslok. Þegar mínúta var eftir af venjulegum leiktíma stangaði Tonny svo boltann inn af stuttu færi og allt ætlaði um koll að keyra á leikvanginum. Hægt er að sjá myndband frá leiknum hér að neðan.