Tryggvi Guðmundsson er orðinn þriðji markahæsti leikmaður ÍBV í knattspyrnu frá upphafi en í gærkvöldi skaust hann fram úr Tómasi Pálssyni. Tryggvi hefur nú skorað 57 mörk fyrir félagið í deildinni frá upphafi en fyrir ofan Tryggva eru þeir Sigurlás Þorleifsson með 60 mörk og Steingrímur Jóhannesson með 72.