Tryggvi Guðmundsson sá til þess að Eyjamenn fögnuðu sigri gegn Fram í kvöld á Hásteinsvelli. Síðustu tvö ár hafa þessi tvö lið mæst í fyrstu umferð Íslandsmótsins, reyndar í bæði skiptin á Laugardalsvelli og í bæði skiptin hafa Framarar haft betur. En í þetta sinn voru það Eyjamenn sem höfðu betur en Tryggvi skoraði sigurmarkið þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Uppbótartíminn var einmitt þrjár mínútur, þannig að tæpara gat það ekki verið.